LIMSpec Wiki
Efni
Henry-René-Albert-Guy de Maupassant (1850 – 1893) var franskur rithöfundur. Hann er stundum nefndur meistari smásögunnar þar sem hann fékkst aðallega við smásögugerð og samdi um 300 smásögur á ferli sínum, auk nokkurra skáldsagna og ferðabóka. Hann var um tíma í læri hjá franska rithöfundinum Gustave Flaubert. Sögur Maupassant þykja einkennandi fyrir svonefnda raunsæisstefnu í bókmenntum. Hann lést úr sárasótt í París árið 1893.
Heimildir
- Fyrirmynd greinarinnar er grein um Maupassant á ensku útgáfu Wikipediu.