The US FDA’s proposed rule on laboratory-developed tests: Impacts on clinical laboratory testing
Efni
Landshlutar Íslands eru átta svæði sem Íslandi er skipt upp í til miðlunar á opinberum gögnum og upplýsingum. Skiptingin byggir nú á skipan sveitarfélaga í landshlutasamtök.[1] Í megindráttum er um að ræða sömu skiptingu og notuð var í kjördæmaskiptingunni sem tekin var upp 1959. Landshlutarnir eru ekki formlegar stjórnsýslueiningar en umdæmi héraðsdóma, lögreglustjóra og sýslumanna falla þó að mestu að þessari skiptingu.
Yfirlit
Nr. | Heiti | Íbúafjöldi (2024)[2] |
Flatarmál (km²) |
Þéttleiki byggðar (á km²) |
ISO 3166-2 | Fjöldi sveitarfélaga | Stærsti bær |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Höfuðborgarsvæðið | 244.177 | 1.046 | 233,44 | IS-1 | 7 | Reykjavík |
2 | Suðurnes | 30.933 | 813 | 38,05 | IS-2 | 4 | Reykjanesbær |
3 | Vesturland | 17.419 | 9.527 | 1,83 | IS-3 | 9 | Akranes |
4 | Vestfirðir | 7.168 | 8.842 | 0,81 | IS-4 | 8 | Ísafjörður |
5 | Norðurland vestra | 7.294 | 13.108 | 0,56 | IS-5 | 4 | Sauðárkrókur |
6 | Norðurland eystra | 31.574 | 22.677 | 1,39 | IS-6 | 11 | Akureyri |
7 | Austurland | 11.085 | 15.706 | 0,71 | IS-7 | 4 | Egilsstaðir |
8 | Suðurland | 34.076 | 30.983 | 1,10 | IS-8 | 15 | Selfoss |
Ísland | 383.726 | 102.702 | 3,74 | IS | 62 | Reykjavík |
Tilvísanir
- ↑ „Landshlutaskipting stjórnsýslunnar“. Hagstofa Íslands. Sótt 13. desember 2024.
- ↑ „Mannfjöldi – Sveitarfélög og byggðakjarnar“. Hagstofa Íslands. Sótt 11. desember 2024.