Practical Applications of a SDMS (Scientific Data Management System)
Efni
Peking
北京 | |
---|---|
Hnit: 39°54′24″N 116°23′51″A / 39.90667°N 116.39750°A | |
Land | Kína |
Borghérað | Beijing |
Stofnun | 1045 f.Kr. |
Borgarhluti | 16 borgarhverfi, 343 bæjarfélög og undirhverfi |
Stjórnarfar | |
• Flokksritari | Yin Li |
• Borgarstjóri | Yin Yong |
Flatarmál | |
• Samtals | 16.410,5 km2 |
Hæð yfir sjávarmáli | 43,5 m |
Mannfjöldi (2020) | |
• Samtals | 21.893.095 |
• Þéttleiki | 1.300/km2 |
Póstnúmer | 100000–102629 |
Tímabelti | UTC+08:00 |
Vefsíða | http://www.beijing.gov.cn/ |
Peking (stundum ritað Beijing) er höfuðborg Alþýðulýðveldisins Kína. Á kínversku ⓘ, (北京), merkir nafnið „Norður-höfuðborg“. Norður, vestur og suður af Peking er Hebei-hérað og í suðaustri er sveitarfélagið Tianjin.
Árið 2020 bjuggu um 19 milljónir búa í Peking í borgarkjarnanum, en heildaríbúafjöldi undir lögsögu borgarinnar (stórborgarsvæðinu) var um 21,9 milljónir. Peking er miðpunktur mennta og menningar auk þess sem stjórnvöld stýra landinu þaðan. Sjanghæ og Hong Kong eru hins vegar meira áberandi hvað varðar efnahagsleg umsvif. Borgin er kunn fyrir ríkulegar hallir, hof og gríðarstóra steinveggi og hlið. Listasöfn borgarinnar og háskólar hennar gera hana að menningarmiðstöð landsins.
Nafn
Frá 1928[1] til 1949, var borgin kölluð Beiping (北平), sem þýðir „Norðlægur friður“. Nafninu var breytt þegar Kuomintang setti á fót höfuðborg í Nanking (南京) („suður-höfuðborg“).
Við stofnun Alþýðulýðveldisins Kína endurreisti Kommúnistaflokkur Kína Peking sem höfuðborg landsins. Kaldara loftslag er í Peking, heldur en í Aþenu.
Saga
Borgir stóðu þar sem nú er Peking á fyrsta árþúsundi fyrir Krist og höfuðborg Yan-ríkisins (燕), var stofnuð við Ji (T: 薊 / S: 蓟), nærri því hvar Peking stendur í dag.
Á tímum Sui- og Tang-ættanna, voru einungis litlir bæir þar sem Peking er nú. Fjöldi fornra skálda sótti staðinn heim og syrgði fornar borgir.
Árið 936, afsalaði seinni Jin-ættin (936-947) sér stórum hluta Norður-Kína á sitt vald, þar með talinn þann stað þar sem Peking stendur nú, til Liao-ættarinnar. Árið 938 reisti Liao-ættin borg þar sem nú er Peking og kallaði hana Nanjing („suður-höfuðborg“). Árið 1125 innlimaði Jinn-ættin Liao, og flutti höfuðborg sína árið 1153 til Peking en kallaði hana Zhongdu (中都), eða „Mið-höfuðborgina“, suðvestur af miðborg Peking nútímans.
Mongólar brenndu Zhongdu til grunna 1215 og byggðu sína eigin stór-höfuðborg, Dadu (大都), norður af höfuðborg Jin-ættarinnar árið 1267 og markar það upphaf Peking. Markó Póló kallaði svæðið „Cambuluc“. Kublai Khan, sem vildi verða keisari Kína, byggði sína borg svo norðarlega fremur en nær miðju landsins svo hún stæði nær þeim stað þar sem veldi hans var mest, í Mongólíu. Enn má sjá leifar af borgarmúr reistum af Mongólum í Peking.
Þriðji Ming-keisarinn Zhu Di (朱棣) flutti höfuðborg Ming-ættarinnar frá Nanjing til Peking (北京), árið 1403. Meðan Ming-ættin ríkti tók borgin á sig mikinn hluta núverandi myndar. Borgarmúrar Peking frá Ming-tímabilinu þjónuðu sem borgarmúrar uns þeir voru rifnir og annar hringvegurinn lagður þar sem þeir stóðu áður.
Landafræði
Peking stendur á norðurodda hinnar svo til þríhyrndu Norður-Kína sléttu sem er opin til suðurs og austurs. Fjöllin í norðri skýla borginni og landbúnaðarhéruðum frá eyðimörkinni í norðri.
Kínamúrinn, liggur að hluta í gegnum nyrðri hluta borgarinnar, varði borgina frá áhlaupum flækinga úr auðninni.
Borgin
Götur
Chang'an breiðgatan liggur þvert í gegnum miðja borgina frá austri til vesturs fram hjá Tian'anmen. Kínversk stjórnvöld kalla breiðgötuna oft „fyrsta stræti Kína“.
Byggingarlist
Í Peking eru ríkjandi þrír meginstraumar í byggingarlist. Í fyrsta lagi eru þar hús í hefðbundnum stíl kínverska keisaradæmisins. Ef til vill eru bestu dæmin um byggingar í þessum stíl Hlið hins himneska friðar og Forboðna borgin. Í öðru lagi eru byggingar í hinum svonefnda „sínó-sov“-stíl. Þetta eru hús sem reist voru á sjötta, sjöunda og áttunda áratugunum. Að lokum er þó nokkuð um nútímabygginarlist í Peking.
Samgöngur
Segja má að Peking sé mikilvægasta samgöngumiðstöð landsins. Umhverfis borgina liggja fimm hringvegir. Í borginni er neðanjarðarlestakerfi sem tekið var í notkun árið 1971. Auk þess eru léttlestir ofanjarðar sem þjóna samgöngum innan borgarinnar. Þrjár lestarstöðvar þjóna samgöngum inn og úr borginni auk nokkurra annarra lestarstöðva í útjöðrum borgarinnar; þangað koma mörghundruð lestir á hverjum degi.
Um 20 km norðaustur af miðborginni er Alþjóðaflugvöllurinn í Peking. Hluti flugvallarins var gerður upp fyrir Ólympíuleikana 2008. Á flugvellinum eru þrjár flugstöðvar en þriðja flugstöðvarbyggingin er ein sú stærsta í heimi. Fimm minni flugvellir í námunda við borgina þjóna einkum innanlandsflugi.
Ferðamennska
Tian'anmen (hlið hins himneska friðar) er andlegur miðdepill Kína, hvort sem er vegna sjálfs sín eða þeirrar staðreyndar að þar er aðgangurinn að Forboðnu borginni. Þá er og á heimsminjaskrá Badaling, bútur úr Kínamúrnum, Sumar-höllin, og hið himneska hof.
Athygliverðir staðir
- Bútar úr Kínamúrnum við:
- Forboðna borgin (á heimsminjaskrá UNESCO)
- Torg hins himneska friðar, þar sem mótmæli fóru fram 1919, 1976 og uppreisn stúdenta 1989
- Tian'anmen (hlið hins himneska friðar)
- Þjóðminjasafn Kína
- Smurningur Maó
- Sumar-höllin
Útvarp
Þrjár útvarpstöðvar senda út efni á ensku en það eru: Hit FM á FM 88.7, Easy FMá FM 91.5, og Radio 774 á AM 774.
Menntun
Í Peking er mikill fjöldi menntastofnanna, þar á meðal Tsinghua-háskóli og Peking-háskóli. Að auki eru að minnsta kosti 57 aðrir skólar á háskólastigi í Peking. Á hverju ári koma margir skiptinemar til borgarinnar frá Japan, Kóreu, Suðaustur-Asíu, Norður-Ameríku, Evrópu og víðar.
Íþróttir
Árið 2008 voru Sumarólympíuleikarnir og sumarólympíumót fatlaðra haldin í Peking. Af því voru byggð mörg ný íþróttamannvirki í borginni.
Mörg íþróttalið hafa aðsetur í borginni, svo sem hafnaboltaliðið Peking-tígurnir, íshokkíliðið Kínahákarlarnir, körfuknattleiksliðið Peking-endurnar og knattspyrnuliðin Peking Guoan og Peking Hongdeng.
Vinabæir
Peking hefur komið á fót vinabæjarsambandi við eftirtaldar borgir:[2]
Neðanmálsgreinar
- ↑ „1928, Jan. 2001. The Encyclopedia of World History“. Sótt 24. nóvember 2007.
- ↑ „Beijing Official Website International“. Sótt 24. nóvember 2007.
Tenglar
- Opinber heimasíða Peking Geymt 13 ágúst 2010 í Wayback Machine
- Upplýsingar um sumarólympíuleikana 2008 Geymt 7 september 2004 í Wayback Machine
- Kort af Peking, 1560x1547 pixels, 645kb Geymt 1 mars 2006 í Wayback Machine
- Kort af Peking-svæðinu
- Veðurspá[óvirkur tengill]
- Mannréttindi og Ólympíuleikar - OlympicWatch.org
- „Af hverju tölum við um Peking en ekki Beijing?“. Vísindavefurinn.
Fyrir ferðalanga
- Myndir Geymt 25 febrúar 2006 í Wayback Machine
- Upplýsingar fyrir ferðamenn
- Ferðahandbók
- Smáatriði varðandi Kína Geymt 6 maí 2006 í Wayback Machine
- Peking.org - Aðdráttarafl Peking Geymt 13 nóvember 2016 í Wayback Machine
- Leiðarvísir
- Peking - ferðir
- Peking - ferðaþjónusta
- Peking - ferðalög
- Pekinglives.com - Upplýsingar um ferðamannaþjónustuna
Myndir
- Myndir af Peking
- Gervihnattamynd frá NASA af Peking Geymt 28 október 2003 í Wayback Machine