Type a search term to find related articles by LIMS subject matter experts gathered from the most trusted and dynamic collaboration tools in the laboratory informatics industry.
Transfóbía er hugtak yfir fjandsamleg viðhorf í garð trans fólks. Transfóbía getur vísað til hræðslu, haturs, andúðar, ofbeldis, reiði eða óþæginda gagnvart trans fólki eða fólki sem fellur ekki að hefðbundnum kynjaímyndum. Transfóbía er náskyld hugtakinu hómófóbía.[1][2]
Transfóbía getur haft mjög alvarlegar afleiðingar og eru vanlíðan og þunglyndi mjög algeng meðal trans fólks enda eru oft á tíðum miklar lagalegar og samfélagslegar fyrirstöður sem koma í veg fyrir að þau fái að lifa í réttu kynhlutverki. Sjálfsvígstilraunir meðal trans fólks eru mjög algengar og allt að 41% trans fólks reynir sjálfsvíg einhvern tímann á lífsleiðinni. Trans fólk verður oft á tíðum fyrir miklum ofsóknum og bæði andlegu og líkamlegu ofbeldi og í mörgum löndum hafa þau engin lagaleg réttindi og hefur sá skortur oft alvarlegar afleiðingar. Heimilisleysi og fátækt eru hlutfallslega há hjá trans fólki, oft vegna slæmra viðbragða fjölskyldu eða annara nákominna þegar einstaklingurinn kemur út sem trans og/eða fordóma frá vinnuveitendum. Vegna þessarar neyðar leiðist hluti trans fólks út í vændi til þess að verða sér úti um einhverja peninga. Vændinu og heimilisleysinu fylgir aukin hætta á sjúkdómum, ofbeldi og auknum afskiptum af hendi lögreglu og af öllum hópum hinsegin samfélagsins þá verða trans konur af öðrum uppruna en hvítum verst úti hvað þetta varðar.[3]