Search for LIMS content across all our Wiki Knowledge Bases.
Type a search term to find related articles by LIMS subject matter experts gathered from the most trusted and dynamic collaboration tools in the laboratory informatics industry.
Ýmis smádýr af fylkingu liðdýra eins og kóngulær og nokkrir ættbálkar skordýra framleiða silki, ýmist sem fullorðin dýr eða á lirfustigi, en mórberjasilkifiðrildið er sú tegund sem helst býr til silki sem menn geta nýtt sér. Lirfa fiðrildisins framleiðir silkið í púpu sína. Hún breytir laufum mórberjatrésins í límkennda froðu sem verður að þræði þegar það kemur úr munni lirfunnar. Úr þessum hárfína þræði býr lirfan svo til púpu. Hægt er að fá þrjár gerðir af silki úr púpunum. Hespusilki eru löngu þræðirnir yst á púpunni og eru þeir um 1000-1500 m langir. Schappelsilki er unnið úr því sem eftir er af púpunni og eru þeir þræðir aðeins 5-30 cm. Hrásilki er svo unnið úr leifum þeirrar vinnslu og eru þeir þræðir styttri en 5 cm.
Eiginleikar silkisins
Silkiþráður er eitt af sterkustu efnum heims miðað við þyngd og það er einnig sveigjanlegt og togsterkt. Silki er mjúkt í að taka og vel einangrandi. Ef silki fær rétta umhirðu hleypur það ekki í þvotti.
Ómeðhöndlað silki missir gljáa og góða eiginleika við sólarljós. Það krumpast minna en bómull en meira en ull. Flest silkiefni þola vélþvott á stilingu fyrir viðkvæman þvott en þola ekki þurrkara. Silki er ekki mjög slitsterkt, það rafmagnast auðveldlega og er mölsækið.
Efnafræðilega er þráðurinn samsettur úr löngum amínósýrusameindum, mjög svo svipuðum keratíni, en það er efni sem til dæmis er í hári, fjöðrum og nöglum ýmissa annarra dýra.
Listi yfir nokkrar villtar tegundir silkiorma
Antheraea assamensis (Helfer, 1837) – frá Assam. Svonefnt Muga-silki. Var einungis í boði fyrir höfðingjaættir í Assam í 600 ár.[1][2]
Antheraea yamamai (Guénerin-Méneville, 1861) – tensan silkifiðrildi (天蚕). Hefur verið ræktað í Japan í 1000 ár. Silkið er hvítt, sterkt og teygjanlegt, en tekur lítiið lit. Það er nú sjaldgæft og dýrt.[1]
Anisota senatoria (J. E. Smith, 1797) – "Orange-tipped oakworm moth" frá Norður-Ameríku.[4][5]
Automeris io (Fabricius, 1775) – Norður Amerískt fiðrildi.[6]
Euchiera socialis – Madrone fiðrildi frá Mið Ameríku. Myndar stór silkikennd hreiður sem voru notuð í pappírslíkt efni á tímum Moctezuma II,[9] og hafa síðar verið spunnin.[10]
Eutachyptera psidii – frá Mið Ameríku (einnig þekkt sem Gloveria psidii[11]). Nýtt svipað og Euchiera socialis hér fyrir ofan.[9][10]