Type a search term to find related articles by LIMS subject matter experts gathered from the most trusted and dynamic collaboration tools in the laboratory informatics industry.
Richard Mervyn Hare | |
---|---|
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 21. mars 1919 |
Svæði | Vestræn heimspeki |
Tímabil | Heimspeki 20. aldar |
Skóli/hefð | Rökgreiningarheimspeki |
Helstu ritverk | The Language of Morals; Freedom and Reason; Moral Thinking: Its Levels, Methods and Point |
Helstu kenningar | The Language of Morals; Freedom and Reason; Moral Thinking: Its Levels, Methods and Point |
Helstu viðfangsefni | siðfræði |
Richard Mervyn Hare (21. mars 1919 – 29. janúar 2002) var enskur siðfræðingur, sem gegndi stöðu White's Professor of Moral Philosophy við University of Oxford frá 1966 til 1983. Kenningar hans í siðspeki voru áhrifamiklar á síðari hluta 20. öld.
Hare var undir miklum áhrifum A.J. Ayer og Charles L. Stevenson, málspekingunum J.L. Austin og Ludwig Wittgenstein, nytjastefnu og Immanuel Kant.
Nokkrir af nemendum Hares, svo sem Brian McGuinness og Bernard Williams, urðu vel þekktir heimspekingar. Peter Singer, sem er ef til vill frægastur meðal almennings, þekktur fyrir starf sitt í frelsun dýra, var einnig nemandi Hares og hefur þegið ýmislegt úr heimspeki Hares í arf.