13. febrúar er 44. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu . 321 dagur (322 á hlaupári ) er eftir af árinu.
Helstu atburðir
1575 - Hinrik 3. Frakkakonungur var krýndur í Reims.
1633 - Galileo Galilei kom fyrir rannsóknarréttinn í Róm.
1660 - Karl 11. varð konungur Svíþjóðar eftir lát föður síns Karls 10.
1668 - Spánn viðurkenndi sjálfstæði Portúgals í friðarsamkomulagi milli konunganna Afonso 6. og Karls 2. fyrir milligöngu Karls 2. Englandskonungs .
1689 - Vilhjálmur 3. af Óraníu og María 2. urðu konungur og drottning Englands.
1692 - Blóðbaðið í Glencoe : Hersveitir Roberts Campbells slátruðu 38 manns úr MacDonald-klaninu í Glencoe fyrir að hafa að sögn neitað að sverja Vilhjálmi 3. hollustueiða.
1693 - Eldgos hófst í Heklu . Daði Halldórsson , barnsfaðir Ragnheiðar Brynjólfsdóttur , ritaði um það skýrslu.
1934 - Sovéska gufuskipið Tsjeljúskin sökk í Atlantshafið.
1945 - Loftárásin á Dresden hófst.
1960 - Frakkar gerðu tilraunir með sína fyrstu kjarnorkusprengju .
1970 - Fyrsta breiðskífa Black Sabbath , Black Sabbath , kom út.
1971 - Helsingforssamningurinn var endurskoðaður í Kaupmannahöfn . Meðal annars var kveðið á um stofnun ráðherranefndar Norðurlanda .
1971 - Víetnamstríðið : Suður-Víetnamar réðust inn í Laos með hjálp Bandaríkjamanna .
1974 - Rithöfundinum og nóbelsverðlaunahafanum Alexander Solsjenitsjin var vísað frá Sovétríkjunum .
1975 - Rauf Denktaş lýsti yfir stofnun Tyrkneska sambandsríkisins Kýpur .
1976 - Yfirmaður herforingjastjórnarinnar í Nígeríu, Murtala Mohammed , var myrtur í valdaránstilraun.
1978 - Sprengjutilræðið við Hilton-hótelið í Sydney : Þrír létust og margir særðust.
1980 - Vetrarólympíuleikarnir 1980 hófust í Lake Placid í New York-fylki í Bandaríkjunum.
1983 - 64 létust þegar kvikmyndahúsið Cinema Statuto brann í Tórínó á Ítalíu.
1984 - Konstantín Tsjernenkó tók við af Júrí Andropov sem aðalritari sovéska kommúnistaflokksins.
1988 - Vetrarólympíuleikarnir 1988 hófust í Calgary í Kanada.
1995 - 21 Bosníuserbi var ákærður fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyni af mannréttindadómstól á vegum Sameinuðu þjóðanna.
1997 - Viðhald á Hubble-sjónaukanum hófst.
1997 - Dow Jones-vísitalan komst í fyrsta sinn yfir 7.000 stig.
2000 - Síðasta myndasagan um Smáfólkið kom út, en höfundur hennar, Charles M. Schulz , lést daginn áður.
2001 - Jarðskjálfti , 6,6 stig á Richterskvarða reið yfir El Salvador . Að minnsta kosti 400 manns létu lífið.
2007 - Norður-Kórea samþykkti að loka kjarnorkurannsóknarstöð sinni í Yongbyon í skiptum fyrir olíu.
Fædd
1332 - Jóhann 5. Palaíológos , keisari Austrómverska ríkisins (d. 1391 ).
1457 - María af Búrgund , kona Maximilians 1., keisara (d. 1482 ).
1599 - Alexander 7. páfi (d. 1667 ).
1610 - Jean de Labadie , franskur dulspekingur (d. 1674 ).
1766 - Thomas Malthus , enskur hagfræðingur og félagsfræðingur (d. 1834 ).
1805 - Johann Peter Gustav Lejeune Dirichlet , þýskur stærðfræðingur (d. 1859 ).
1901 - Paul Lazarsfeld , austurrískur félagsfræðingur (d. 1976 ).
1902 - Harold Lasswell , bandarískur stjórnmálafræðingur (d. 1978 ).
1913 - Khalid bin Abdul Aziz al-Sád , konungur Sádi-Arabíu (d. 1982 ).
1913 - Halldóra Briem , íslenskur arkitekt (d. 1993 ).
1920 - Örlygur Sigurðsson , íslenskur teiknari og rithöfundur (d. 2002 ).
1927 - Hálfdán Björnsson , íslenskur náttúrufræðingur.
1933 - Paul Biya , forseti Kamerún.
1938 - Oliver Reed , enskur leikari (d. 1999 ).
1939 - Beate Klarsfeld , þýskur blaðamaður og nasistaveiðari.
1942 - Peter Tork , bandarískur tónlistarmaður (The Monkees ).
1944 - Stockard Channing , bandarísk leikkona.
1950 - Peter Gabriel , enskur tónlistarmaður (Genesis ).
1956 - Peter Hook , enskur bassisti (Joy Division og New Order ).
1965 - Peter O'Neill , stjórnmálamaður frá Papúu Nýju-Gíneu.
1970 - Karoline Krüger , norsk söngkona.
1974 - Robbie Williams , enskur söngvari.
1979 - Mena Suvari , bandarísk leikkona.
1979 - Anders Behring Breivik , norskur hryðjuverkamaður.
Dáin
Mánuðir og dagar ársins
Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember Tengt efni