12. september er 255. dagur ársins (256. á hlaupári ) samkvæmt gregoríska tímatalinu . 110 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir
1066 - Innrásarfloti Vilhjálms sigursæla hélt úr höfn í Normandí .
1185 - Andronikos 1. Komnenos keisari var pyntaður og tekinn af lífi.
1213 - Her Albígensakrossferðarinnar undir stjórn Simon de Montfort vann sigur á her Raymonds 6. af Toulouse og Péturs 2. konungs Aragóníu í orrustunni við Muret.
1213 - Jakob 1. varð konungur Aragóníu .
1297 - Dinis Portúgalskonungur og Ferdínand 4. , konungur Kastilíu, undirrituðu samkomulag sem fastsetti landamæri Portúgals .
1445 - Kristófer af Bæjaralandi gekk að eiga Dórótheu af Brandenborg .
1484 - Giovanni Battista Cibo tók við embætti páfa sem Innósentíus 8.
1528 - Aðmírállinn Andrea Doria vann sigur á Frökkum , áður bandamönnum sínum, og tryggði sjálfstæði Genúa .
1609 - Henry Hudson kom að ósum Hudsonfljóts .
1654 - Cromwell skipaði svo fyrir að þeir þingmenn sem væru honum andsnúnir á Afgangsþinginu skyldu útilokaðir.
1683 - Orrustan um Vínarborg : Sameinuðum her Pólverja , Þjóðverja og Austurríkismanna tókst að aflétta umsátrinu.
1745 - Frans 1. var kjörinn keisari hins Heilaga rómverska ríkis með tilstyrk konu sinnar Maríu Teresu af Austurríki .
1905 - Ráðhús Kaupmannahafnar var formlega vígt.
1909 - Sjúkrasamlag Reykjavíkur var stofnað að frumkvæði Oddfellowreglunnar .
1910 - Íþróttasamband Reykjavíkur var stofnað.
1940 - Nokkur frönsk ungmenni uppgötvuðu 17.000 ára gömul hellamálverk í Lascaux-hellum .
1949 - Mesti mældur hiti á Íslandi í september varð 26 °C á Dalatanga við Mjóafjörð .
1962 - David Ben-Gurion , forsætisráðherra Ísraels, kom í opinbera heimsókn til Íslands.
1965 - Orlofshúsin í Ölfusborgum voru tekin í notkun.
1970 - Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi Kristnihald undir jökli , leikrit eftir Halldór Laxness . Aðalhlutverkið, Jón prímus, lék Gísli Halldórsson .
1974 - Haile Selassie Eþíópíukeisara var steypt af stóli af herforingjaráði sem síðan tók völdin.
1975 - Þörungaverksmiðjan á Reykhólum tók til starfa.
1977 - Steve Biko lést eftir höfuðáverka sem hann hlaut í gæsluvarðhaldi lögreglu í Suður-Afríku.
1977 - Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi var stofnaður.
1980 - Herforingjastjórn rændi völdum í Tyrklandi .
1985 - Íslandsmet var sett í fallhlífarstökki er fallhlífarstökkvarar frá Akureyri stukku úr 21 þúsund feta hæð og voru í frjálsu falli í tvær mínútur áður en fallhlífarnar voru opnaðar.
1988 - Fellibylurinn Gilbert tók land á Jamaíka þar sem hann olli miklum skemmdum. 30 manns fórust.
1990 - Tveir plús fjórir-samkomulagið : Vestur- og Austur-Þýskaland auk Fjórveldanna undirrituðu samkomulag um sameiningu Þýskalands.
1992 - Kanada, Bandaríkin og Mexíkó tilkynntu að samkomulag hefði náðst um Fríverslunarsamning Norður-Ameríku .
1996 - Ricardo López sendi Björk Guðmundsdóttur pakka með sýrusprengju og framdi síðan sjálfsmorð. Scotland Yard komst yfir pakkann nokkrum dögum síðar.
1998 - Fimmenningarnir frá Miami voru handteknir fyrir njósnir.
Fædd
1494 - Frans 1. Frakkakonungur (d. 1547 ).
1712 - Gísli Magnússon , Hólabiskup (d. 1779 ).
1852 - Herbert Henry Asquith , forsætisráðherra Bretlands (d. 1928 ).
1895 - Freymóður Jóhannsson , íslenskt tónskáld og textahöfundur (d. 1973 ).
1896 - Jóhann Jónsson , íslenskur rithöfundur og skáld (d. 1932 ).
1897 - Irene Joliot-Curie , franskur eðlisfræðingur og Nóbelsverðlaunahafi (d. 1956 ).
1902 - Juscelino Kubitschek , forseti Brasilíu (d. 1976 ).
1913 - Jesse Owens , bandarískur íþróttamaður (d. 1980 ).
1921 - Stanisław Lem , pólskur rithöfundur (d. 2006 ).
1923 - Kolbrún Jónsdóttir , íslenskur myndhöggvari (d. 1971 ).
1932 - Kim Hamilton , bandarisk leikkona (d. 2013 ).
1934 - Jaegwon Kim , bandarískur heimspekingur.
1939 - Nobuyuki Oishi , japanskur knattspyrnumaður.
1944 - Barry White , bandarískur söngvari (d. 2003 ).
1944 - Yoshio Kikugawa , japanskur knattspyrnumaður.
1951 - Lalli Johns , íslenskur smáglæpamaður.
1957 - Hans Zimmer , þýskt kvikmyndatónskáld.
1959 - Hisashi Kaneko , japanskur knattspyrnumaður.
1967 - Louis C.K. , bandarískur leikari.
1973 - Paul Walker , bandarískur leikari (d. 2013 ).
1975 - Þórunn Erna Clausen , íslensk leikkona.
1976 - Lauren Stamile , bandarísk leikkona.
1985 - Hiroki Mizumoto , japanskur knattspyrnumaður.
1986 - Emmy Rossum , bandarísk leikkona.
1986 - Yuto Nagatomo , japanskur knattspyrnumaður.
1994 - RM , suður-kóreskur rappari, meðlimur í K-pop hópnum BTS .
1996 - Colin Ford , bandarískur leikari.
Dáin
1213 - Pétur 2. konungur Aragóníu féll í orrustu (f. 1174 )
1263 - Mindaugas , konungur Litháen.
1348 - Jóhanna halta, Frakklandsdrottning (f. 1293 ).
1362 - Innósentíus 6. páfi.
1369 - Blanka af Lancaster , eiginkona John af Gaunt og móðir Hinriks 4. (f. 1345 ).
1612 - Vasilíj Sjúiskíj , Rússakeisari (f. 1552 ).
1642 - Cinq-Mars markgreifi og hirðmaður Loðvíks 13.
1683 - Afonso 4. konungur Portúgals (f. 1643 ).
1733 - François Couperin , franskt tónskáld (f. 1668 ).
1764 - Jean-Philippe Rameau , franskt tónskáld (f. 1683 ).
1819 - Blücher herforingi í her Prússa (f. 1742 ).
1860 - William Walker , bandarískur ævintýramaður (f. 1824 ).
1947 - Thor Jensen , dansk-íslenskur athafnamaður (f. 1863 ).
1948 - Héðinn Valdimarsson , íslenskur verkalýðsforingi (f. 1892 ).
1981 - Eugenio Montale , ítalskt skáld (f. 1896 ).
2003 - Johnny Cash , bandarískur kántrítónlistarmaður (f. 1932 ).
2004 - Max Abramovitz , bandarískur arkitekt (f. 1908 ).
2005 - Bessi Bjarnason , íslenskur leikari (f. 1930 ).
2006 - Magnús Kjartansson , íslenskur myndlistarmaður (f. 1949 ).
2009 - Norman Borlaug , bandarískur verkfræðingur (f. 1914 ).
2010 - Claude Chabrol , franskur leikstjóri (f. 1930 ).
Mánuðir og dagar ársins
Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember Tengt efni