11. maí er 131. dagur ársins (132. á hlaupári ) samkvæmt gregoríska tímatalinu . 234 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir
1310 - 54 musterisriddarar voru brenndir á báli í Frakklandi fyrir villutrú .
1610 - Enski landkönnuðurinn Henry Hudson kom til Íslands í síðustu ferð sinni til Ameríku.
1661 - Ragnheiður Brynjólfsdóttir í Skálholti sór eið um hreinlífi sitt. Sonur hennar, Halldór Daðason, fæddist 40 vikum síðar.
1678 - Franski flotaforinginn Jean 2. d'Estrées sigldi öllum flota sínum, sautján skipum, í strand á kóralrifi við Curaçao .
1682 - Streltsíuppreisnin hófst í Moskvu .
1721 - Kötlugos hófst með jarðskjálfta og miklum drunum, sem heyrðust allt norður í Eyjafjörð . Gosmökkurinn sást víða að.
1777 - Hannes Finnsson var vígður Skálholtsbiskup 38 ára að aldri. Hann gegndi biskupsembætti til æviloka.
1812 - Spencer Perceval , forsætisráðherra Bretlands , var myrtur af John Bellingham í anddyri Breska þingshússins .
1911 - Knattspyrnufélagið Valur í Reykjavík var stofnað af fjórtán strákum í KFUM .
1912 - Hið íslenska fræðafélag í Kaupmannahöfn var stofnað.
1930 - Skógræktarfélag Eyfirðinga var stofnað og hét þá Skógræktarfélag Íslands.
1936 - Knattspyrnufélagið Víðir var stofnað í Garði .
1946 - Slysavarnafélag Íslands tók í notkun nýja björgunarstöð í Örfirisey í Reykjavík . Mikill mannfjöldi var viðstaddur vígslu hennar.
1949 - Nafni landsins Síam var breytt í Taíland í annað sinn.
1949 - Leikrit Shakespeares , Hamlet Danaprins , var frumflutt í Iðnó og lék Lárus Pálsson Hamlet.
1955 - Kópavogur varð kaupstaður , en hafði sjö árum áður orðið hreppur við aðskilnað frá Seltjarnarneshreppi .
1960 - Ísraelskir leyniþjónustumenn handtóku þýska nasistaforingjann Adolf Eichmann í Buenos Aires í Argentínu .
1975 - Um 75.000 manns fögnuðu lokum Víetnamstríðsins í Central Park í New York-borg .
1984 - Jörðin var í beinni línu milli sólarinnar og Mars . Því var hægt að fylgjast með skugga jarðarinnar færast yfir yfirborð Mars. Næst gerist þetta 10. nóvember 2084 .
1985 - Mafíunefndarréttarhöldin : FBI lagði fram ákærur á hendur meintum forystumönnum fimm mafíufjölskyldna í New York.
1985 - 56 létust þegar viðarstúka brann á Valley Parade-leikvanginum í Bradford á Englandi.
1987 - Klaus Barbie fór fyrir rétt í Lyon sakaður um stríðsglæpi.
1989 - Bandaríkin sendu 1900 hermenn til Panama til að vernda bandaríska ríkisborgara.
1995 - Yfir 170 lönd samþykktu ótakmarkaða framlengingu Samnings um að dreifa ekki kjarnavopnum .
1996 - ValuJet flug 592 hrapaði í Everglades í Flórída. Allir 110 um borð fórust.
1997 - Ofurtölvan Deep Blue sigraði Garrí Kasparov í skák með 3½ vinningi gegn 2½.
Fædd
1366 - Anna af Bæheimi, Englandsdrottning (d. 1394 ).
1720 - Münchhausen barón , þýskur barón og sagnaritari (d. 1797 ).
1811 - Chang og Eng Bunker , síamstvíburar (d. 1874 ).
1874 - Einar Jónsson , íslenskur myndhöggvari (d. 1954 ).
1897 - George Peter Murdock , bandarískur mannfræðingur (d. 1985 ).
1904 - Salvador Dalí , spænskur listamaður (d. 1989 ).
1916 - Camilo José Cela , spænskur rithöfundur (d. 2002 ).
1918 - Richard Feynman , bandarískur eðlisfræðingur (d. 1988 ).
1924 - Jóhannes Nordal , íslenskur seðlabankastjóri (d. 2023 ).
1924 - Jackie Milburn , enskur knattspyrnumaður (d. 1988 ).
1952 - Frances Fisher , bandarísk leikkona.
1963 - Natasha Richardson , leikkona (d. 2009 ).
1968 - Jeffrey Donovan , bandarískur leikari.
1971 - Sigurður Eyberg , íslenskur leikari og söngvari.
1973 - Jóhann Hjörleifsson , íslenskur trommuleikari.
1975 - Coby Bell , bandarískur leikari.
1977 - Marcos Paulo , brasilískur knattspyrnumaður.
1980 - Björgólfur Hideaki Takefusa , íslenskur knattspyrnumaður.
1981 - Daisuke Matsui , japanskur knattspyrnumaður.
1982 - Cory Monteith , kanadískur leikari (d. 2013 ).
1983 - Holly Valance , leikkona og söngkona.
1984 - Andrés Iniesta , spænskur knattspyrnumaður.
1987 - Tomoaki Makino , japanskur knattspyrnumaður.
1988 - Oscar Carlén , sænskur handknattleiksmaður.
1992 - Thibaut Courtois , belgískur knattspyrnumaður.
Dáin
1610 - Matteo Ricci , ítalskur trúboði (f. 1552 ).
1642 - Safi Persakonungur (f. 1611 ).
1686 - Otto von Guericke , þýskur vísindamaður (f. 1602 ).
1778 - William Pitt eldri , breskur stjórnmálamaður og forsætisráðherra (f. 1708 ).
1812 - Spencer Perceval , enskur stjórnmálamaður (f. 1762 ).
1960 - John D. Rockefeller, yngri , bandarískur auðmaður (f. 1874 ).
1962 - Hans Luther , þýskur stjórnmálamaður (f. 1879 ).
1965 - Wilhelm Ernst Beckmann , þýsk-íslenskur tréskurðar- og höggmyndalistamaður (f. 1909 ).
1970 - Katrín Thoroddsen , íslenskur læknir og alþingiskona (f. 1896 ).
1976 - Alvar Aalto , finnskur arkitekt og hönnuður (f. 1898 ).
1981 - Bob Marley , söngvari og tónlistarmaður (f. 1945 ).
1996 - Nnamdi Azikiwe , nígerískur stjórnmálamaður (f. 1904 ).
2001 - Douglas Adams , breskur rithöfundur (f. 1952 ).
2017 - Jóhanna Kristjónsdóttir , íslenskur rithöfundur og blaðamaður (f. 1940 ).
2018 - Gérard Genette , franskur bókmenntafræðingur (f. 1930 ).
2019 - Pua Magasiva , samósk-nýsjálenskur leikari (f. 1980 ).
2020 – Jerry Stiller , bandarískur gamanleikari (f. 1927 ).
2022 – Shireen Abu Akleh , palestínsk blaðakona (f. 1971 ).
Mánuðir og dagar ársins
Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember Tengt efni