1. maí er 121. dagur ársins (122. á hlaupári ) samkvæmt gregoríska tímatalinu . 244 dagar eru eftir af árinu. Dagurinn er alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins .
Atburðir
305 - Keisararnir Diocletianus og Maximianus sögðu af sér þannig að Constantius Chlorus varð einn keisari.
1328 - Edinborg-Northampton-sáttmálinn : Konungur Englands viðurkenndi sjálfstæði Skotlands.
1351 - Zürich gekk í Svissneska ríkjasambandið.
1566 - Páll Stígsson , höfuðsmaður , drukknaði í tjörn hjá Lambhúsum á Álftanesi .
1585 - Felice Peretti varð Sixtus 5. páfi.
1615 - Aftakaveður gerði á Breiðafirði og fórust áttatíu manns af þrettán skipum.
1707 – Konungsríkið Stóra-Bretland var myndað með Sambandslögunum (Act of Union ).
1783 - Ný eyja, sem kölluð var Nýey , myndaðist í eldgosi neðansjávar suðvestur af Reykjanesi , líklega í grennd við Eldeyjarboða . Ári síðar var hún horfin.
1840 - Fyrsta penny-frímerkið var prentað í Bretlandi.
1889 - Á þingi evrópskra verkalýðsfélaga í París var samþykkt tillaga frá Frökkum um að 1. maí skyldi verða alþjóðlegur frídagur verkafólks .
1897 - 54 menn, flestir frá Eyjafirði og Patreksfirði , fórust af fimm skipum í norðan ofviðri með hríð og frosti.
1908 - Knattspyrnufélagið Fram var stofnað í Reykjavík.
1922 - Strandferðaskipið Sterling , hið fyrsta í eigu ríkisins, strandaði við Brimnes í Seyðisfirði. Mannbjörg varð.
1923 - Kröfuganga var í fyrsta skipti farin á Íslandi á 1. maí.
1925 - Rússneska knattspyrnuliðið Zenit Sankti Pétursborg var stofnað.
1926 - Verkfall kolanámumanna hófst í Bretlandi. Ein milljón námuverkamanna lagði niður vinnu.
1927 - Sundfélagið Ægir var stofnað í Reykjavík.
1935 - Bifreiðaeinkasala ríkisins tók til starfa og var ein um innflutning og sölu bifreiða í sjö ár.
1936 - Grænmetisverzlun ríkisins tók til starfa.
1937 - Kvæði Halldórs Laxness, „Maístjarnan “, birtist fyrst í æskulýðsblaði.
1948 - Sunnanlands snjóaði svo mjög að með fádæmum þótti. Jafnfallinn snjór á Stórhöfða í Vestmannaeyjum mældist 65 sentimetrar.
1965 - Þyrla fórst og með henni fimm menn við Kúagerði á leið frá Hvalfirði til Keflavíkur. Um borð voru æðstu menn Varnarliðsins auk flugmanna.
1967 - IBM á Íslandi var stofnað.
1970 - Rauðsokkuhreyfingin tók þátt í kröfugöngu verkalýðsins í Reykjavík og er upphaf hennar miðað við þennan atburð.
1970 - Mótmæli brutust víða út í Bandaríkjunum við upphaf réttarhaldanna yfir New Haven-nímenningunum og í kjölfar fyrirskipunar Nixons um innrás í Kambódíu.
1973 - Um 1,6 milljón verkamanna í Bretlandi fóru í daglangt verkfall til að mótmæla verðbólguaðgerðum ríkisstjórnarinnar.
1977 - 34 létust og hundruð særðust í blóðbaðinu á Taksimtorgi í Istanbúl.
1978 - Sprengjumaðurinn frá Gladsaxe særðist af eigin sprengju í Kaupmannahöfn og var tekinn höndum.
1978 - Japanski ævintýramaðurinn Naomi Uemura komst fyrstur manna einn á Norðurpólinn.
1979 - Grænland fékk heimastjórn.
1981 - Landssamband kartöflubænda var stofnað á Íslandi.
1982 - Hernaðaraðgerðir Breta hófust í Falklandseyjastríðinu .
1985 - Hundrað ára afmælis Jónasar Jónssonar frá Hriflu var minnst með því að afhjúpa brjóstmynd af honum við Arnarhvál í Reykjavík.
1986 - Danski skipavarðveislusjóðurinn var stofnaður innan menntamálaráðuneytis Danmerkur.
1989 - Skemmtigarðurinn Disney-MGM Studios var opnaður í Walt Disney World í Flórída.
1991 - Borgarastyrjöldin í Angóla : MPLA og UNITA samþykktu Bicesse-samkomulagið .
1993 - Ranasinghe Premadasa , forseti Srí Lanka, var myrtur af sjálfsmorðssprengjumanni úr röðum Tamíltígra .
1994 - Formúlu 1-ökuþórinn Ayrton Senna lést í slysi sem varð í kappakstrinum San Marino Grand Prix á Ítalíu.
1995 - Króatíski herinn hóf Bljesakaðgerðina gegn Króatíuserbum í Krajinahéraði .
1995 - Oriental Pearl Tower var opnaður í Sjanghæ .
1995 - Jacques Chirac var kosinn forseti Frakklands.
1997 - Þingkosningar fóru fram í Bretlandi . 18 ára stjórn Íhaldsflokksins lauk þegar Verkamannaflokkurinn vann kosningasigur.
1998 - Ecofin kom saman til að samþykkja lista yfir ríki sem fengju að taka upp evruna .
1999 - Teiknimyndaþættirnir Svampur Sveinsson hófu göngu sína á Nickleodeon .
2003 - George W. Bush tilkynnti að hernaðaraðgerðum í Írak væri lokið.
2004 - Kýpur , Eistland , Lettland , Litháen , Malta , Pólland , Slóvakía , Slóvenía , Tékkland og Ungverjaland urðu aðilar að Evrópusambandinu.
2005 - Netsamfélagið Istorrent var stofnað á Íslandi.
Fædd
1218 - Rúdolf 1. keisar , konungur Þýskalands og keisari hins Heilaga rómverska ríkis (d. 1291 ).
1238 - Magnús lagabætir , Noregskonungur (d. 1280 ).
1316 - Karl 6. keisari (d. 1378 ).
1602 - William Lilly , enskur stjörnuspekingur (d. 1681 ).
1769 - Arthur Wellesley, hertogi af Wellington (d. 1852 ).
1823 - Jemima Blackburn , skoskur málari (d. 1909 ).
1885 - Jónas Jónsson frá Hriflu , íslenskur stjórnmálamaður (d. 1968 ).
1899 - Jón Leifs , íslenskt tónskáld (d. 1968 ).
1919 - Óskar Aðalsteinn Guðjónsson , íslenskur rithöfundur og vitavörður (d. 1994 ).
1933 - Magnús Ingimarsson , íslenskur tónlistarmaður (d. 2000 ).
1937 - Ragnheiður Torfadóttir , íslenskur kennari.
1939 - Judy Collins , bandarísk söngkona.
1945 - Rita Coolidge , bandarísk söngkona.
1946 - Joanna Lumley , bresk leikkona.
1951 - Álfheiður Ingadóttir , íslenskur stjórnmálamaður.
1955 - Brynhildur Þorgeirsdóttir , íslensk myndlistarkona.
1959 - Yasmina Reza , franskt leikskáld og rithöfundur.
1964 - Halla Signý Kristjánsdóttir , íslenskur stjórnmálamaður.
1968 - Oliver Bierhoff , þýskur knattspyrnumaður.
1969 - Yasuyuki Moriyama , japanskur knattspyrnumaður.
1969 - Wes Anderson , bandarískur leikstjóri.
1983 - Trausti Laufdal , íslenskur tónlistarmaður.
1986 - Adrian Lux , sænskur plötusnúður.
1989 - Mitch Nichols , ástralskur knattspyrnumaður.
Dáin
1045 - Benedikt 9. páfi.
1118 - Matthildur (Edit) af Skotlandi, Englandsdrottning, fyrri kona Hinriks 1. (f. um 1080 ).
1312 - Evfemía , drottning Noregs, kona Hákonar háleggs .
1539 - Ísabella af Portúgal , drottning Spánar og keisaraynja hins Heilaga rómverska ríkis, kona Karls 5. keisara (f. 1503 ).
1555 - Marsellus 2. páfi.
1572 - Píus 5. páfi.
1873 - David Livingstone , skoskur landkönnuður og trúboði (f. 1813 ).
1904 - Antonín Dvořák , tékkneskt tónskáld (f. 1841 ).
1945 - Joseph Goebbels , þýskur stjórnmálamaður (f. 1897 ).
1994 - Ayrton Senna , brasilískur ökuþór (f. 1960 ).
2003 - Haukur Clausen , íslenskur frjálsíþróttamaður (f. 1928 ).
Heimild
Mánuðir og dagar ársins
Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember Tengt efni