Type a search term to find related articles by LIMS subject matter experts gathered from the most trusted and dynamic collaboration tools in the laboratory informatics industry.
Elisabeth Louise Vigée Le Brun (líka skrifað Vigée-Lebrun; franska: [elizabɛt lwiz viʒe ləbʁœ̃]; 16. apríl 1755 - 30. mars 1842),[1] einnig þekkt sem Madame Le Brun, var frægur franskur portrettmálari seint á 18. öld.
Listrænn stíll hennar er almennt flokkaður sem arfleifð frá rókókóstíl með áhrifum frá nýklassískum stíl.[2] Hægt er að flokka myndefni hennar og litanotkun sem rókókó, en stíll hennar tengist uppgangi nýklassismans. Vigée Le Brun skapaði sér nafn innan konungsveldisins sem portrettmálari Maríu Antonettu. Hún naut fulltingis evrópskra aðalsmanna, leikara og rithöfunda og var félagi í listaakademíum tíu borga.[3]
Vigée Le Brun málaði um 660 portrettmyndir og 200 landslagsmyndir.[4] Auk margra verka í einkasöfnum eru málverk eftir hana í eigu stórra safna, svo sem Louvre, Hermitage-safnsins, National Gallery í London, Metropolitan Museum of Art í New York og margra annarra safna á meginlandi Evrópu og í Bandaríkjunum.
{{cite web}}
: |title=
vantar (hjálp)